Ferðafélag Íslands býður upp á einstaka ferð á fyrirhugað virkjanasvæði neðan Ófeigsfjarðarheiðar dagana 10. - 13. ágúst. Lagt er upp með að sýna þátttakendum í ferðinni umrætt svæði á hlutlausan hátt þannig að hver og einn geti myndað sér skoðun á þessum virkjanakosti byggða á eigin upplifun.
Þátttakendur koma sér á eigin vegum til Norðurfjarðar fimmtudaginn 10. ágúst. Gist verður í tvær nætur að Valgeirsstöðum en eina nótt á á fyrirhuguðu virkjanasvæði. Gengið verður upp með Eyvindarfjarðará og að Eyvindarfjarðavatni og Hvalárvötnum og fossaraðir í í Hvalá og Eyvindarfjarðará skoðaðar, meðal annars fossinn Drynjandi.
Þátttakendur heimsækja Kaffi Norðurfjörð og Kört og ganga á fjöll í Árneshreppi, þ.e. Urðartind og Töflu.
Sjá ferðalýsingu nánar undir ferðir og á facebókarsíðu Ferðafélags Íslands