Lýðheilsugöngur Ferðafélags Íslands eru einn af hápunktum í afmælisári félagsins, en félagið fagnar 90 ára afmæli í ár. Fyrstu göngurnar af fjórum fóru fram víðsvegar um landið í gær.
„Lýðheilsugöngurnar fara vel af stað, gengið var í öllum landshlutum í gær og þátttaka fór fram úr okkar björtustu vonum,“ segir Ólöf Sívertsen verkefnastjóri hjá Ferðafélagi Íslands.
„Gengið verður alla miðvikudaga í septemer og hvetjum við fólk að fylgjast með dagskránni á heimasíðu okkar www.fi.is/lydheilsa og skrá sig í næstu göngur, en allir þeir sem skrá sig á heimasíðunni eiga kost á því að hreppa veglegan vinning að launum fyrir þátttöku,“ segir Ólöf ennfremur.
Næstu göngur fara fram 13. september viðsvegar um landið. Nánari upplýsingar eru að finna á heimasíðu verkefnisins, fi.is/lydheilsa.
Gengið í Mosfellsbæ
Gengið í Fljótsdalshéraði.