Fullbókað í söguferð - nokkur sæti laus í áhugaverðar ferðir

Fullbókað er í söguferð á Vesturlandi með Sigrúnu Valbergsdóttur um miðjan maí.  Fullbókað er í 14 sumarleyfisferðir FÍ í sumar.  Vakin er athygli á nokkrum ferðum þar sem örfá sæti eru laus.

Sæludagar í Hlöðuviík með Guðmundi Hallvarðssyni,  Jónsmessa og jóga á Hornströndum með Sigrúnu Valbergs og Auði Bjarnadóttur,  Saga, byggð og búseta II,  Kjalvegur hinn forni með Leifi Þorsteinssyni og Kvennaferð um Laugaveginn með Helgu Garðars og Elínu S. Óladóttur