Fyrirlestur hjá Nafnfræðifélaginu - örnefni á Þingvöllum

Örnefnaskráning í þjóðgarðinum á Þingvöllum

Einar Á.E. Sæmundsen fræðslufulltrúi þjóðgarðsins á Þingvöllum heldur fyrirlestur laugardaginn 21. mars í stofu 130 í Öskju, húsi Háskóla Íslands, kl. 13.15. Einar mun fjalla um skráningu örnefna í þjóðgarðinum og hvaða aðferðafræði er beitt.  Yfir 800 örnefni hafa verið skráð inn á loftmyndagrunn í landupplýsingakerfi þjóðgarðsins eftir mismunandi örnefnaskráningum.  Í fyrirlestrinum ræðir Einar um aðferðafræðina, örnefnaskráningar og grunngögn  sem liggja til grundvallar.

Fyrirlesturinn er öllum opinn.

Stjórnin