Fyrsta íslenska fjallamyndin

Ama Dablam - Beyond The Void.

Fyrsta íslenska fjallamyndin verður frumsýnd (boðssýning) í Háskólabíó fimmtudaginn 22. maí kl.20. Hún verður einnig sýnd mánudaginn 26.maí og þriðjudaginn 27.maí. Simon Yates verður svo með fyrirlestur í Ferðafélagssalnum í Mörkinni 6.

 

Þetta er heimildamynd um leiðangur Viðars Helgasonar og Ingvars Þórissonar á Ama Dablam 6.856 m háan tind í Himalaja. Fylgdarmaður þeirra var hinn kunni fjallamaður Simon Yates sem menn þekkja úr Touching The Void. Leiðangurinn var farinn þrátt fyrir alvarlegt slys á fjallinu 2006 þegar búðir 3 þurrkuðust út í snjóflóði og 6 manns fórust. Litlu munaði að annar leiðangur hlyti sömu örlög í fyrra.

Myndin lýsir vel erfiðleikunum háfjallamennskunar og fegurð Himalajafjalla.