Fyrsta myndakvöld ársins verður haldið í sal FÍ í Mörkinni 6 miðvikudaginn 20. febrúar kl. 20:00.
Gísli Már Gíslason prófessor fjallar um náttúru og nytjar við Látrabjarg í máli og myndum. Þórarinn Björnsson verður með sýningu sem hann nefnir „Hið smáa í íslenskri náttúru“ með áherslu á fléttur og skófir á steinum.
Aðgangseyrir kr. 600
Innifalið kaffi og kleinur í hléi.
Allir velkomnir.