Ganga um Gálgahraun á Álftanesi 25. apríl kl 14

Laugardaginn 25. apríl kl. 14.00 verður gengið um Gálgahraun í fylgd með Jónatani Garðarssyni. Að þessu sinni mun Hilmar Örn Hilmarsson allsherjargoði einnig helga Ófeigskirkju, álfaklett í hrauninu og Háskólakórinn mun syngja. Hópurinn hittist á mótum Álftanesvegar og Hraunahverfis.

Nánari upplýsingar veita Jónatan Garðarsson í síma 8971788 og Gunnsteinn Ólafsson í síma 6926030.