Gengið á góða spá: Gildalshnúkur

Á laugardaginn verður genginn skemmtilegur hringur um Hafnarfjall í opnu útivistarverkefni FÍ sem nefnist Gengið á góða spá. Allir eru velkomnir.

Verkefnið Gengið á góða spá snýst um þá meginhugmynd að stunda útivist og fjallgöngur í góðu veðri. Næstkomandi laugardag 15. október er Veðurstofan að spá brakandi góðu veðri og því við hæfi að hefja verkefnið.

Og það er ekki byrjað á verri endanum því verkefni laugardagsins er 8,5 km hringur um Hafnarfjall, upp um Klausturtunguhól, um geilina (sjá mynd hér til hliðar), upp á Gildalshnúk og svo niður eftir hryggnum sem liggur meðfram þjóðveginum.

Gönguleiðin er afar fjölbreytt og skemmtileg og búast má við að gangan taki 5-6 klukkustundir. Fararstjóri er Ragnar Antoniussen.

Hér eru tímasetningar sem skipta máli:

08:00 Brottför frá Mörkinni 6, húsi Ferðafélags Íslands.
09:30 Ganga hefst frá bílastæði undir Hafnarfjalli.
15:30 Göngu líkur í síðasta lagi. Komið að bílum.
17:00 Áætluð koma til Reykjavíkur.

Mæting við skrifstofu FÍ, rétt fyrir brottför og þar geta þeir sem það vilja sameinast í bíla gegn þátttöku í bensínkostnaði. Athugið að það tekur um 55 mínútur að aka að upphafsstað göngu.

Verð í gönguna er kr. 5.000.
Skráning og greiðsla á skrifstofu FÍ eða í síma 568 2533 fyrir kl. 15 á föstudaginn 14. október.


Gengið á góða spá með Ferðafélagi Íslands

Göngurnar í útivistarverkefninu Gengið á góða spá verða fjölbreyttar að umfangi, bæði fjallgöngur og annars konar útivist, léttar göngur og erfiðar, langar og stuttar. Ferðirnar eru farnar þangað sem spáð er bestu veðri og mestar líkur eru á góðu gönguveðri og fjallaútsýni. Að jafnaði er farið um helgar, annað hvort laugardag eða sunnudag og eru ferðirnar auglýstar með stuttum fyrirvara þ.e. miðvikudag/fimmtudag fyrir hverja ferð.

Ferðirnar verða auglýstar bæði hér á heimasíðu Ferðafélags Íslands sem og á fésbókarsíðu. Allra best er þó að fylgjast með þessum ferðum með því að ganga í fésbókarhópinn Gengið á góða spá. Meðlimir hópsins munu þá fá allar upplýsingar um fyrirhugaðar ferðir beint inn á eigin fésbók. Innan hópsins verður líka hægt að skiptast á myndum og ferðasögum, sameinast í bíla og kynnast nánar.

Ferðirnar standa öllum opnar og fólk getur mætt í eina eða allar þær ferðir sem settar verða á dagskrá, allt eftir áhuga, getu og tíma. Þó er nauðsynlegt að skrá sig á skrifstofu FÍ í síma 568 2533 eða með því að senda póst á fi@fi.is fyrir kl. 15, föstudaginn fyrir hverja ferð.

Athugið að þó að gengið sé þegar vel viðrar þá er enginn afsláttur gefin af fatnaði og þeim búnaði sem þátttakendur þurfa að taka með sér, því veður geta breyst afar hratt, sérstaklega til fjalla.