Gleðileg jól

Bestu jóla- og nýárskveðjur. Skrifstofa FÍ er í jólafríi frá og með 23. desember. Opnað er aftur mánudaginn 2. janúar.

Ferðafélag Íslands sendir öllum félagsmönnum, samstarfsaðilum, vinum og velunnurum og landsmönnum öllum bestu jóla- og nýárskveðjur.

Snaefellsjokull.jpg
Sumarsólstöður á Snæfellsjökli

Við þökkum fyrir ánægjulega samfylgd á árinu sem er að líða, allar gleðilegu göngustundirnar og sætu fjallasigrana og hlökkum til að hitta ykkur á nýju ári til að takast á við fleiri verkefni og nýjar áskoranir.

Athugið að lokað verður á skrifstofu Ferðafélags Íslands á Þorláksmessudag, föstudaginn 23. desember. Opnað verður aftur mánudaginn 2. janúar 2017.

Landmannalaugar.jpg
Í Landmannalaugum

Skálavörður verður í Landmannalaugum yfir jól og áramót og tekur þar á móti gestum í jólasnjó og háfjallagleði. Síminn í Landmannalaugum er: 860 3335.

Landsamband íslenskra vélsleðamanna er með vefmyndavél í Landmannalaugum þar sem alltaf er hægt að forvitnast um veður og snjóalög.

Áætlun FÍ 2017 er í prentun og verður dreift til félagsmanna 6. janúar. Bókanir í ferðir hefjast mánudaginn 9. janúar.

Forsida_aaetlun.jpg