Gömul, ný og horfin kennileiti og örnefni á heimajörðum Kópavogsbæjar

Nafnfræðifélagið

(svavar@hi.is)

 

Nafnfræðifélagið efnir til fræðslufundar  laugardaginn 20. nóvember 2010, í stofu N131 í Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands, og hefst hann kl. 13.15. Guðlaugur Rúnar Guðmundsson,  cand. mag. í sagnfræði, flytur fyrirlestur sem hann nefnir Nokkur gömul, ný og horfin kennileiti og örnefni á heimajörðum Kópavogskaupstaðar

 

Sérstakt sveitarfélag, Kópavogshreppur, varð til úr þremur aðskildum landbútum við klofning úr hinum forna Seltjarnarneshreppi árið 1948. Fjallað verður um hvernig saga Íslands speglast í kennileitum og örnefnum á heimajörðum Kópavogskaupstaðar sem stofnaður var 1955.

Heimajarðirnar eru Kópavogur, Digranes, Fífuhvammur og Vatnsendi. 

Frásögnin verður skýrð með ljósmyndum og teikningum. 

 

Allir velkomnir.