Gönguferðir fyrir þá sem eiga erfitt um gang

Ferðafélag Íslands er ekki einungis fyrir fullfríska klettaklifrara heldur er félagið líka með gönguferðir fyrir þá sem eiga erfitt um gang af einhverjum orsökum, hvort sem það er vegna líkamlegra annmarka eins og offitu eða bakverkja eða andlegra annmarka eins og þunglyndis. Félagið er nú að auka samstarf sitt við heilbrigðisyfirvöld enda hafa rannsóknir margsýnt að gönguferðir eru mjög hollar bæði fyrir líkama og sál og sumir segja þær allra meina bót.

Eftirfarandi grein og viðtal við Pál Guðmundsson, framkvæmdastjóra Ferðafélags Íslands birtist fyrst í blaðinu Ísland - ferðalandið.

..........

Ferðafélag Íslands var stofnað 1927 og hefur það markmið að byggja upp aðstöðu fyrir ferðamenn á hálendinu og í óbyggðum og greiða götu ferðamanna á landinu. Þá gefur FÍ út bækur og kort og stendur fyrir fjölbreyttum ferðum um landið. Félagið á 40 skála og undir merkjum félagsins starfa 15 deildir út um allt land. Ferðafélagið er í eðli sínu íhaldssamt og rótgróið og heldur fast í gömul og góð gildi.

Um leið hefur það þó þróast í takt við tímann. Til dæmis var Ferðafélag barnanna stofnað fyrir nokkrum árum en það sérhæfir sig í ferðum fyrir börn og fjölskyldur og hefur fengið afar góðar móttökur. Nú hefur Ferðafélag unga fólksins verið stofnað og mun bjóða upp á ferðir fyrir 18 – 25 ára. Ferðafélag Íslands hefur frá stofnun félagsins verið í fararbroddi í ferðamennsku og byggt upp skála, gönguleiðir, göngubrýr og staðið fyrir fræðslu.

Markmið félagsins eru í dag enn þau sömu og í upphafi, að greiða götu ferðamanna, byggja upp aðstöðu sem og standa fyrir ferðum, útgáfu og fræðslu. Stór þáttur í útgáfustarfi félagsins er útgáfa Árbókar Ferðafélagsins sem hefur komið út óslitið í 89 ár og er einstök ritröð um náttúru landsins

Náttúran í fyrsta sæti

Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands segir að fjöldi ferðamanna hafi aukist jafnt og þétt á Íslandi undanfarin ár en aldrei eins og á síðustu 2- 3 árum. „Ísland er mjög vinsæll staður að sækja heim og eins hefur ferðum landsmanna innanlands fjölgað,“ segir Páll.

„Það þurfa allir sem koma að ferðamálum, hvort sem það eru sveitafélög eða hið opinbera, ferðaskrifstofur, ferðafélög eða landeigendur að koma saman og ræða skynsamlegustu leiðina að settu marki. Við verðum að hugsa um náttúruna og aðstöðuna sem við bjóðum upp á og þurfum að vera viss um að ráða við þann fjölda ferðamanna sem um landið fer.

Náttúra landsins er í dag okkar verðmætasta auðlind en um leið sú viðkvæmasta. Hvað varðar ferðamenn sem sækja landið heim náttúrunnar vegna þá finnst mér engin sérstök ástæða að þeim fjölgi meira á meðan við náum ekki að tryggja uppbyggingu innviða og vernd svæða. Hins vegar getum við tekið á móti fleiri ferðamönnum sem vilja kynna sér sögu okkar og menningu, matargerð og listir og þess háttar, þ.e. ferðamenn sem eru meira í byggð en að sjálfsögðu þurfum við líka að tryggja að við getum tekið vel á móti þeim.“

Einstefna á Laugaveginum

Fullbókað er í skála FÍ á Laugaveginum yfir háannatímann. Ferðafélagið hefur í áratugi unnið við að byggja upp aðstöðu víða um land, ekki síst á gönguleiðinni frá Landmannalaugum yfir í Þórsmörk, á svokölluðum Laugavegi. Nú ganga 120 -140 manns þessa leið á hverjum einasta degi frá miðjum júní fram í miðjan ágúst. Allt að 70% þeirra eru útlendingar að sögn Páls og 80% þeirra ganga leiðina úr Landmannalaugum í Þórsmörk.

Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri FÍ


Ferðafélagið á sex skála á Laugaveginum en árið 2012 var Laugavegurinn tilnefndur sem ein af 10 bestu gönguleiðum í heiminum af National Geographic. Segir Páll það hafi verið mikla viðurkenningu fyrir starf FÍ. Gönguleiðin og skálasvæðið voru tekin út og svo tilnefnd í kjölfarið á þeirri úttekt. ,,Við viljum gjarnan skoða allar góðar hugmyndir til að tryggja öryggi ferðamanna, auka upplifun þeirra og ekki síst að tryggja vernd náttúrunnar, t.d. með því að taka upp einstefnu og ítölu á gönguleiðinni.“

Landmannalaugar komu best út allra ferðamannastaða á landinu í könnun Ferðamálastofu árið 2012 er varðar heildarupplifun ferðamannsins og sama má sjá í fleiri rannsóknum. Í dag sækja um 80 – 90.000 manns í Landmannalaugar yfir sumartímann.

Nú er unnið í skipulagsmálum á svæðinu og vonandi verður hægt að bæta aðstöðu ferðamanna á svæðinu hratt og örugglega. Páll telur að umræðan um Landmannalaugar hafi sumpart verið neikvæð og að mörgu leyti röng. Einhverjir tala um 200 þúsund manns í Laugum þegar hið rétta er 80 – 90.000 yfir fjóra mánuði eða á milli 500 og 1.000 manns á dag. Þar af stoppa flestir aðeins í 2 – 4 tíma.

,,Það þarf að ráðast í meiri rannsóknir en við höfum áður séð, ekki síst á náttúru og gróðurfari. Á meðan við klárum ekki alvöru rannsóknir verður allt tal um þolmörk bara huglægt mat. Aðstaðan eins og hún er í dag er mjög gott verkfæri til að stýra umferðinni.

Það komast ekki fleiri í skálapláss á Laugaveginum miðað við aðstöðu sem er um leið tækifæri fyrir önnur svæði en það eru til mjög margar aðrar skálaleiðir sem skemmtilegt sé að ganga. Engin verður svikin af þeim leiðum og ég nefni sem dæmi Lónsöræfi, Víknaslóðir, Öskjuveginn og Strútsstíg, en á öllum þessum gönguleiðum er ágæt skálaaðstaða.

Það er hins vegar ekki hægt að dreifa ferðamönnum um svæði eins og margir halda. Ferðamenn fari einfaldlega á þau svæði þar sem er aðstaða og uppbygging og gott aðgengi.“

Ekki bara fyrir fullfríska klettaklifrara

Mikil vöxtur hefur verið í starfsemi FÍ undanfarin ár og verkefnin mörg og fjölbreytt. Það er ekki einungis fyrir fullfríska klettaklifrara heldur hefur félagið verið í samstarfi við fjölmarga aðila, t.d. Reykjalund og Háskóla Íslands, með gönguferðir fyrir þá sem eiga erfitt um gang af einhverjum orsökum.

Það getur verið vegna líkamlegra annmarka eins og offitu eða andlegra annmarka eins og þunglyndis og fleira. Rannsóknir sem voru gerðar meðal þátttakenda þessara ferða segir Páll að hafi komið mjög ánægjulega út. Rannsóknir hafa margsýnt að gönguferðir eru mjög hollar bæði fyrir líkama og sál og sumir segja þær allra meina bót.

,,Við erum nú að auka samstarfið við heilbrigðisyfirvöld og efnum til gönguferða fyrir ákveðna hópa innan heilbrigðisgeirans. Nú er Ferðafélagið búið að stofna bakskólann þar sem verið er að reyna að koma fólki af stað í léttum gönguferðum með styrkjandi og liðkandi æfingum þannig að þeir sem hafa gefið eftir heilsufarslega komist á beinu brautina aftur.

Síðan eru hópar fólks með geðraskanir en rannsóknir hafa sýnt að gönguferðir hjálpa þeim geysilega mikið. Gönguferðir, hvort sem er um skóglendi eða við hafið hafa mjög róandi áhrif. Að komast upp á fjall hefur t.d. mjög jákvæð áhrif á andlega líðan fólks. Allt eru þetta afrek og hjallar til að sigrast á og bakskóli Ferðafélagsins er liður í hjálpinni.

Við fórum af stað með 52 verkefni FÍ árið 2010 sem sló í gegn og hefur fest sig í sessi og auk þess sem til hafa orðið ýmis hliðarverkefni eins og 12 og 24 fjöll, framhaldslíf og eilíft líf. Á síðustu árum hafa fleiri þúsund manns tekið þátt í þessum verkefnum,“ segir Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands.