Göngugleði á sunnudögum

Göngugleðin og Haustgangan

Ágætu ferðaféalgar og Hornstrandafarar FÍ  !

Þá eru flestir komnir til byggða  eftir ferðalög sumarsins og ekki seinna vænna en að reima aftur á sig gönguskóna því við erum farin að huga að gönguferðum haustsins. Við munum hefja Göngugleðina sunnudaginn 2. september.  Þá mun Pétur H. Ármannsson leiða okkur um gönguslóðir Nóbelskáldsins og ganga með okkur á Grimmansfell og ætti það að vera við allra hæfi. 

Lagt verður af stað frá Mörkinni 6, kl. 10:30 – safnast verður saman í bíla.

Einnig er farið að huga að skipulagi hinnar árlegu Haustgöngu.

Verður hún farin laugardaginn 13. október.

Hvetjum við ykkur til að taka daginn strax frá á dagatalinu.

Nánari upplýsingar verða sendar síðar.

Með bestu kveðjum.

Stjórn Hornstrandafara FÍ.