Gönguleiðir upp úr botni Hvalfjarðar

Við höfum nú fengið í hús nýtt gönguleiða rit: Gönguleiðir upp úr botni Hvalfjarðar eftir Leif Þorsteinsson. Allar leiðirnar í ritinu eiga það sameiginlegt að byrja í botni Hvalfjarðar þ.e. annað hvort í Brynjudal eða Botnsdal. Einnig eru leiðarlýsingar á fjöll í nágreninu t.d. Botnsúlur, Hvalfell, Þyril o.fl.  Flestar gönguleiðirnar eru við við allra hæfi.

Við hverja leiðarlýsingu er að finna kort þar sem leiðin er merkt inn á sem og GPS hnit. Leiðunum fylgja einnig aðrar hagnýtar upplýsingar s.s.  lengd, hækkun, áætlaður göngutími og erfiðleika gráða. Leiðarlýsingarnar eru lifandi, spennandi og fullar af fróðleik. Ritið er skreytt með skemmtilegum myndum  og afar góðum kortum en einnig er að finna þar stökur og þjóðsögur.

Hægt er að nálgast ritið á skrifstofu okkar í Mörkinni 6.

Ritið kostar kr. 1900