Göngur um Mosfellsbæ

Næsta mánudag hefst sannkölluð gönguveisla í Mosfellsbæ. Boðið verður upp á bæði stuttar kvöldgöngur á göngustígum bæjarins og hefst sú fyrsta kl. 19 næsta mánudag 23. maí þegar gengið verður frá bílastæðinu við Hlégarð.

Þá verður boðið upp á morgungöngu kl. 6, miðvikudaginn 25. maí frá bílastæðinu við Harðarból, félagsheimili hestamannafélagsins Harðar þar sem gengið verður í fjörunni og meðfram strandlengju Mosfellsbæjar.

Allar nánari upplýsingar hér að neðan:

Vorgöngur í Mosfellsbæ