Gönguskíðakynning hjá FÍ á fimmtudag

Skíðagöngufélagið Ullur og Ferðafélag Íslands standa fyrir kynningu  á skíðagönguíþróttinni í sal Ferðafélags Íslands fimmtudaginn 8. mars kl. 20  Meðal annars verða hinar ýmsu gerðir af skíðum kynntar, t.d. ferðaskíði, brautarskíði og fjallaskíði sem og ýmis annar skíðabúnaður, t.d. púlkur, klæðnaður ofl. Svarað verður spurningum um hvað þarf að hafa í huga við kaup á skíðum og fleira eftir því sem gestir kunna að óska.

 Farið verður yfir skíðáburð og tækni við að bera á skíði, einnig sagt frá skíðagöngumótum á Íslandi.

 Þá mæta fulltrúar frá Útivistarversluninni Everest og kynna skíðabúnað og tilboð á völdum skíðavörum.

 Skíðagöngufélagið Ullur og Ferðafélag Íslands