Námskeið á GPS staðsetningartæki og í rötun 13. - 17. nóvember
Á námskeiðinu er kennd notkun á staðsetningartækjum. Þátttakendur æfa sig í að finna punkta, setja inn í tækin og merkja út á korti. Námskeiðið er tvö kvöld innandyra og ein útiæfin og hentar bæði fyrir byrjendur og þá sem vilja upprifjun í notkun á staðsetningartækjum.
Námsgöng: Þátttakendur þurfa að hafa með sér eigin GPS tæki, áttavita og skriffæri.
13. nóvember |
þriðjudagur |
19:30 - 22:30 |
15. nóvember |
fimmtudagur | 19:30 - 22:30 |
17. nóvember |
laugardagur | Útiæfing sem tekur um 2 tíma |
Alls 8 klukkustundir / 12 kennslustundir.
Leiðbeinandi: Sigurður Jónsson björgunarsveitarmaður og leiðbeinandi í rötun og ferðamennsku.
Námskeiðsgjald: 21.900 kr.
Námskeið Endurmenntunarskólans eru styrkhæf hjá flestum fræðslusjóðum stéttarfélaga.
Félagar í Útivist, Ferðafélagi Íslands og Skotveiðifélagi Íslands (SKOTVÍS) fá 10% afslátt af námskeiðsgjaldi.
Staðsetning: stofa 206 á 2. hæð Tækniskólans við Háteigsveg (áður Sjómannaskólinn).
Skráning fer fram á http://www.tskoli.is/gps eða hér