Háir tindar og heillandi strandir

Fjölmargra nýjunga sér stað í ferðaáætlun Ferðafélags Íslands 2008 sem nú er komin út. Auk sígildra dags- og sumarferða sem alltaf njóta vinsælda, eru í boði ýmsar ferðir þar sem klifið verður á hæstu tinda. 

Sá hópur sem stundar útivist af einhverjum toga breikkar og fer sístækkandi og tekur ferðaáæltun FÍ  mið af því. Bæði eru sérstakar unglingaferðir og svo ferðir fyrir eldra fólk aukinheldur sem boðið einnig upp á ferðir þar sem kynslóðirnar sameinast.

Helgar- og sumarleyfisferðirnar í áætlun þessa árs eru fjölmargra. Meðal nýjunga má nefna þriggja daga ferð um matarkistuna við Breiðafjörð, þar sem höfð verður viðkoma á bæjum á Skarðströnd og í Reykhólasveit þar sem heimafólk nýtir enn hlunnindi og lifir af því sem landið gefur.

Ferðir á Hornstrandir skipa jafnan stóran sess í Ferðaáætlun FÍ. Þar fer leiðtoginn Guðmundur Hallvarðsson fyrir fyrir góðum hópi fararstjóra og fjölbreyttu úrvali ferða, enda er náttúran á nyrstu ströndum fæstu lík og heillandi eftir því.  Í júlí er á dagskránni ferð um slóðir stríðsminja, hvalveiðistöðva og síldarævintýra í Sléttuhreppi á Hornströndum þar sem Sigríður Lóa Jónsdóttir er fararstjóri.  Sæludagar í Hlöðuvík, Saga, byggð og búseta og Jóga og jónsmessa eru einnig á meðal áhugaverðra Hornstrandaferða.

Auk hálendisferða, má svo meðal annars nefna fjögurra daga ferð Ólafs Arnar Haraldssonar frá Bláfjallahálsi, með jökli um Jarlhettur og niður að Laugarvatni, ferð þar sem gæði og þjónusta eru í öndvegi.  Þá er breytt fyrirkomulag í fjögurra daga ferð Páls Guðmundssonar um verslunarmannahelgina um Héðinsfjörð, Hvanndali og aðrar eyðibyggðir yst á Tröllaskaga.

Þá eru ónefndar unglingaferðir, ömmu og afaferðir og kvennaferðir.

Um miðjan september bjóða þeir Valgarður Egilsson og Páll Ásgeir Ásgeirsson upp á draugaferð í Hvítárnes, en margir þykjast hafa skynjað reimleika í skálanum þar.  Þá er boðið upp á páska- og skíðaferðir og má þar nefna skíðaferð með Sigrún Valbergs á Hesteyri yfir páskana svo og fjallaskíðaferðir með Jökli Bergmann.

Sífellt meira er lagt upp úr þjónustu í ferðum FÍ, til dæmis fæði og að farangur sé trússaður milli áfangastaða og er það í samræmi við auknar kröfur ferðalanga um gæði og þjónustu.