Halló Bolungarvík - Reykjarfjörður

Halló Bolungarvík - Reykjafjörður, unglingar á ferð og flugi.  FÍ býður upp á unglingaferð í Bolgungarvík og Reykjarfjörð á Hornströndum eftir verslunarmannahelgi með Guðmundi Hallvarðssyni og Hallvarði Jóni.  Ferðin er frá 4. ágúst - 10. ágúst.  Gist er  eina nótt í Norðurfirði og tvær nætur í Bolungarvík og tvær nætur í Reykjarfirði..  Verð í ferðina er kr. 25. 000, innifalið, gisting, sigling og fararstjórn.  Þátttakendur koma á eigin vegum til Norðurfjarðar en boðið er upp á að sameinast í bíla.  Farið verður í skemmtilegar gönguferðir og á kvöldin verða kvöldvökur með ýmsu sprelli tilheyrandi.