Haustferð Hornstrandafara 22. september 2012

Haustferð Hornstrandafara og F.Í. 22. september 2012

Að þessu sinni varð Selvogsgata fyrir valinu. Þægileg og hæfilega löng leið. 
Áætlaður göngutími u.þ.b. 5 klst.
Brottför frá F.Í., Mörkinni 6, kl. 09:30.
Ekið að upphafsstað göngunnar við Grindaskörð..
Að göngu lokinni verður ekið með hópinn að Hótel Örk í Hveragerði þar sem bíða sundlaug og heitir pottar, veislumatur og skemmtileg kvöldstund.
Sundföt og önnur föt má geyma í rútunni.
Verð kr. 6000.–, innheimt í rútunni, enginn posi, best að reiða fram nákvæmlega þessa upphæð.
Dragið nú fram allt skemmtilegt sem þið eigið í fórum ykkar og leyfið okkur hinum að njóta.

 

Guðmundur Hallvarðsson spilar undir fjöldasöng.


Munið að skrá ykkur fyrir 18. september hjá einhverjum neðantalinna:
Eiríkur 849-9895, eiriktho@hi.is
Eygló 895-4645, eyglo@yggdrasill.is
Maggi 895-6833, maggikonn@hive.is
Skrifstofa F.Í. 5682533, fi@fi.is

Gísli Már gmg@ormstunga.is eða með því að svara þessum pósti með „Reply


Holl lesning til undirbúnings er: Ólafur Þorvaldsson. Selvogsgata og Krýsuvíkurleiðir. Ferðafélag Íslands. Reykjavík 1999. (Sjöundi titill í ritröðinni Fræðslurit Ferðafélags Íslands). (Fæst á skrifstofu F.Í.)