Ágætu Hornstrandafarar !
Hin árlega haustganga Hornstrandafara FÍ verður farin
Við höfum svipað fyrirkomulag og áður þ.e. að hafa hana með árshátíðarívafi og blöndum saman útivist og skemmtun. Dagskráin verður í aðalatriðum á þessa leið:
Kl. 10 Brottför með rútum frá húsi Ferðafélags Íslands, Mörkinni 6. Ekið verður að bænum Brúsastöðum í Þingvallasveit.
Kl. 11 Við munum ganga á fjallið Búrfell (782 m) en við höfum grun um að ekki hafi margir gengið á það. Þetta verður nokkuð létt fjallganga (byrjum í um 170 m hæð) og er frábært útsýni af fjallinu. Síðan er ætlunin að ganga niður af fjallinu í áttina að Svartagili (yfir Öxará) og þangað mun rútan sækja okkur.
Reiknað er með 4½ 5½ klst. göngu við allra hæfi með tveimur köffum.
Kl. 17 Ekið að Nesjavöllum, en þar gefst ferðalöngum kostur á að fara í sturtu, heita potta og skipta um föt.
Kl. 19 Hefst tveggja rétta kvöldverður. Milli rétta má búast við ávarpi leiðtogans, söng, glensi og gamanmálum og ekki má gleyma happdrættinu góða.
Að lokinni máltíð og skemmtiatriðum leikur Breiðbandið sívinsæla fyrir dansi.
Ekki er gert ráð fyrir skartklæðum, betri skálaföt vel við hæfi.
Kl. 23+ Ekið til Reykjavíkur.
Kostnaður fyrir rútu, heitan pott , kvöldverð og skemmtun er kr. 6000 og greiðist við brottför en þátttakendur hafi með sér nesti yfir daginn.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku fyrir 8. október nk. í síma 568 - 2533 eða á fi@fi.is og gefið upp nafn/nöfn. Einnig má tilkynna þátttöku til eftirtalinna nefndarmanna sem fúslega veita allar nánari upplýsingar.
Guðmundur Hallvarðsson 568 6114 og 862 8247
Magnús Konráðsson 554 4797 og 895 6833
Ólöf Sigurðardóttir 553 9048 og 693 7386
Sigríður Lóa Jónsdóttir 554 5462 og 698 6543
Vonumst til að sjá ykkur sem flest !
Nefndin