Haustganga Hornstrandafara FÍ

     Haustgangan 2009

Ágætu Hornstrandafarar !

 Hin árlega haustganga Hornstrandafara Ferðafélags Íslands verður farin laugardaginn 3. október nk.Við höfum gönguna með svipuðu fyrirkomulagi og fyrr, þ.e. með árshátíðarívafi og blöndum þannig saman útivist og skemmtun.

Dagskráin verður í aðalatriðum á þessa leið: 

 Kl. 10 Brottför með rútum frá húsi F. Í., Mörkinni 6.  Kl. 11  Lagt verður af stað í gönguna frá einni af borholunum við Ölkelduháls á Hellisheiði. Gengið verður umhverfis Hrómundartind með möguleika að ganga á sjálfan tindinn fyrir þá sem vilja (ca 560 m). Þetta er mjög fallegt svæði og mun áreiðanlega koma á óvart því þarna er mjög fjölbreytt landslag með hverasvæðum og fallegri fjallasýn. Við göngum m.a. um mjög sérstakt gil – en sjón er sögu ríkari.  Við vekjum athygli á því að þarna er gengið um hverasvæði og  því ástæða til að gæta að sér en við munum fylgja stikaðri og öruggri slóð.Þetta verður nokkuð létt ganga, ca 12 km að mestu á láglendi og endum á sama stað og byrjað var.   Þar mun rútan sækja okkur og flytja hópinn í sund og svaml í heitum pottum.   Reiknað er með um 5 klst. göngu við allra hæfi með tveimur köffum. 

 Kl.17:00  Ekið í sundlaugina á Selfossi en þar gefst ferðalöngum  kostur á að fara í sturtu, heita potta, rennibraut! og skipta um föt.  Kl. 19:30  Hefst tveggja rétta kvöldverður í Básnum í Ölfusi. Milli rétta má búast við ávarpi leiðtogans, söng, glensi og gamanmálum og ekki má gleyma happdrættinu góða. Að lokinni máltíð og skemmtiatriðum leikur Breiðbandið sívinsæla fyrir dansi. Ekki er gert ráð fyrir skartklæðum, betri skálaföt vel við hæfi. Kl. 23+  Ekið til Reykjavíkur.

Kostnaður fyrir rútu, sund, kvöldverð og skemmtun er kr. 6.500 og greiðist í reiðufé við brottför en þátttakendur hafi með sér nesti yfir daginn.

Vinsamlegast tilkynnið þátttöku fyrir 29. september nk. með því að ýta á „reply“ eða á fi@fi.is  og gefið upp nafn/nöfn. Einnig má tilkynna þátttöku til eftirtalinna nefndarmanna sem fúslega veita allar nánari upplýsingar.

Guðmundur Hallvarðsson  568 6114  og 862 8247

Magnús Konráðsson   554 4797 og 895 6833 

Ólöf Sigurðardóttir  553 9048 og 8937386                   

Sigríður Lóa Jónsdóttir   554 5462 og 698 6543

Jónína Pálsdóttir   568 6307 og 897 8732 

Þetta er kjörið tækifæri til að hitta göngufélaga sumarsins og fyrri sumra og rifja upp fyrri ferðir og leggja á ráðin með þær næstu. Þá er að bregðast strax við og skrá sig !Vonumst til að sjá ykkur sem flest. 

Stjórnin