Heilsubót á fimmtudögum

Reynir_a_Ulfarsfelli.jpg

Tómas Guðbjartsson, hjartalæknir, verður sérstakur gestur hinnar vikulegu heilsubótargöngu FÍ á Úlfarsfell á morgun, fimmtudag kl. 17:45. Göngurnar eru opnar og ókeypis. Mæting að venju á bílastæðið við Úlfarsárdal.

Ferðafélagið hefur boðið upp á heilsubótargöngur á Úlfarsfell kl. 17:45 á hverjum fimmtudegi í vetur og göngurnar halda áfram til jóla.

Reynir Traustason, rithöfundur og blaðamaður, leiðir göngurnar en hann á að baki hartnær 900 göngur á fjallið frá árinu 2009.

Úlfarsfell er fjall í borg þar sem það rís rúma 300 metra upp á mörkum Mosfellsbæjar og Reykjavíkur. Ganga á fjallið tekur tæpar 2 klukkustundir og alls eru þá gengnir um 4 kílómetrar. Gengið er á hraða sem hentar flestum. Sungið er á hæsta tindi og æfingakerfið Haukurinn tekið. Þá er sögustund við ákveðin tækifæri og gestagöngumenn.

Göngurnar hefjast á bílastæðinu í Úlfarsárdal kl. 17:45 og þeim lýkur um kl. 19:30. Sjá kort hér að neðan.

Ekkert kostar að taka þátt í göngunum sem eru á færi langflestra. Fólk þarf að vera í skjólgóðum klæðnaði og með höfuðljós og smábrodda.

Ulfarsfellsganga.jpg