Helgafell og Laugavegsganga hin skemmri - sumardagurinn fyrsti

Á morgun sumardaginn fyrsta býður Ferðafélagið borgarbúum upp á tvær gönguferðir og eru þær hluti af dagskrá Höfuðborgarstofu sem nefnist Ferðalangur.  

Klukkan 10 verður gengin Laugavegsganga hin skemmri, frá Mörkinni 6 og niður í Laugardag um gömlu þvottaleiðina.  Fararstjóri Þorgrímur Gestsson sagfræðingur.

Klukkan 11.00 verður gengið á Helgafell, bæjarfjall Hafnfirðinga.  Mætt er á einkabílum að Kaldárseli. Fararstjóri Leifur Þorsteinsson.

Þátttaka er ókeypis í báðar ferðirnar - allir velkomnir.