Hjálpaðu okkur að verða betri

Ferðafélag Íslands vinnur nú að því að endurbæta heimasíðu sína og biðlar til félagsmanna og annarra að svara örstuttri viðhorfskönnun.

Í þessari könnun erum við að skoða viðhorf og notkun fólks á heimasíðu FÍ, samfélagsmiðlum og fréttabréfi félagsins.

Hjálpaðu okkur til að verða enn betri með því að smella á þennan hlekk eða myndina hér til hliðar og svara þessari könnun. Það tekur aðeins um 5 mínútur.

Skoðanir þínar eru okkur mikilvægar og við værum því afar þakklát ef þú tekur þátt.

Við lokum fyrir innsendingu svara föstudaginn 2. desember.