Hvað get ég gert?

Málþing um ábyrga ferðamennsku sem ber yfirskriftina: Öxlum ábyrgð - Hvað get ég gert? verður haldið fimmtudaginn 4. maí, frá kl. 15-17 í sal FÍ, Mörkinni 6.

Það er Ferðafélag Íslands og Landgræðslan sem standa að málþinginu þar sem fjallað verður um hlutverk útivistarfélaga og ferðaþjónustunnar í að vernda og tryggja aðgengi að náttúrunni. Fundurinn er haldinn í tilefni af 90 ára afmæli Ferðafélagsins og er ókeypis og öllum opinn.

Dagskrá málþingsins

  • 15:00 Setning
  • 15:05 Gönguleiðir og verndun náttúrunnar – Hvað getum við gert?
    Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri FÍ
  • 15:20 Gætum velferðar landsins – Sýn ferðaþjónustunnar
    Sævar Skaptason, framkvæmdastjóri Hey Iceland / Ferðaþjónusta bænda og stjórnarformaður Íslenska Ferðaklasans
  • 15:35 Helping the Hills – Raising conservation awareness
    Helen Lawless, Mountaineering Ireland
  • 16:00 Kaffihlé
  • 16:15 Gæði og gönuhlaup – Nýting, ábyrgð, áskoranir
    Andrés Arnalds, Landgræðslu ríkisins
  • 16:35 Umræður – Nýting og ábyrgð
  • 16:55 Samantekt
  • 17:00 Málþingi slitið

Fundar- og umræðustjórar:

  • Steinar Kaldal, aðstoðarmaður umhverfis- og auðlindaráðherra.
  • Ólafur Teitur Guðnason, aðstoðarmaður iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.