Best er að tína sveppi síðsumars og á haustin en áður en haldið er á sveppamó er víst best að kunna að greina æta sveppi frá þeim eitruðu!
Ferðafélag barnanna tíndi sveppi í Heiðmörk í gær með sérfræðingum Háskóla Íslands og fékk svona líka fína fræðslu um sveppatínslu, eitraða sveppi og hvernig á að matreiða sveppi.
Nú hvetjum við alla til að fara út og tína sveppi áður en frostið hirðir þá alla.
Hér er handhægt skjal um sveppagreiningu.