Hvannadalshnjúkur - æfing - annar hluti

Hvannadalshnúkur – æfingaprógram FÍ fyrir hvítasunnuferð á Hvannadalshnúk – annar hluti

vatnajokull
Úr ferð FÍ á Hvannadalshnjúk 2005.

Um er að ræða 4 mánaða prógram sem miðar að því að undirbúa þátttakendur fyrir gönguferð á Hvannadalshnúk.  Annar hluti prógrammsins hefst á morgun miðvikudaginn 14. mars.

Æfingaáætlunin er kynnt á heimasíðu FÍ og með tölvupósti til félagsmanna.

 Ferðafélagið hefur um langt árabil staðið fyrir gönguferðum á Hvannadalshnúk. Ferðir FÍ síðast liðin tvö ár undir stjórn Haraldar Arnar Ólafsssonar hafa verið geysivinsælar og fjölmennar.  Ferðafélagsferð FÍ á Hvannadalshnúk 2007 er  Hvítasunnuhelgina 26. maí.

 Segja má að það hafi komist í tísku á meðal landans að ganga á hæsta tind landsins.  Flestir hafa sem betur fer gert sér grein fyrir að um erfiða göngu er að ræða sem krefst undirbúnings, útbúnaðar og ekki síst að göngumenn þurfa að vera í góðu formi.  Því miður eru það þó ekki allir og hafa sumir talað um að ætla að skreppa á Hvannadalshnúk um helgina, án þess að hafa undirbúið sig nokkuð.  

Ferðafélagið vill því nú standa fyrir æfingaáætlun fyrir ferðina.

Einn mánuður er kynntur í senn. Öllum er frjálst að mæta í gönguferðirnar.

Fræðsla um vetrarferðir, útbúnað og mataræði verður fléttuð inn í prógrammið.

Miðað er við tvær sameiginlegar gönguferðir í viku, en auk þess mælt með þeirri þriðju sem þátttakendur fara á þeim tíma sem hentar.  Jafnframt er önnur líkamsrækt hentug með sem þriðja og fjórða skipti í viku, t.d. sund eða æfing í líkamsræktarsal.

 Ø      Miðvikudagur 14. mars kl. 18 – kvöldganga á Helgafell í Hafnarfirði

Ø      Sunnudagur 18. mars  kl. 10.30  - Göngugleði FÍ í nágrenni Reykjavíkur

Ø      Miðvikudagur 21. mars  kl. 18 – kvöldganga á Esju að Steini

Ø      Sunnudagur 25. mars kl. 10.30 – Göngugleði FÍ í nágrenni Reykjavíkur

Ø      Miðvikudagur 28. mars kl. 18. – Gengið á Helgafell við Mosfellsbæ

Ø      Sunnudagur 1. apríl kl. 10.30 – Göngugleði FÍ í nágrenni Reykjavíkur

Ø      Miðvikudagur 4. apríl kl. 18 – Gengið á Esjuna

 Þátttakendur mæta á eigin bílum, í Mörkina á sunnudögum og að viðkomandi fjalli eða upphafsstað göngu á miðvikudögum.