Í náttúrunnar stórbrotna ríki

NÝ BÓK: Í NÁTTÚRUNNAR STÓRBROTNA RÍKI

Ferdadagbok
Svavar Sigmundsson, Ingólfur Einarsson, Gerður Steinþórsdóttir og
Ólafur Örn Haraldsson á skrifstofu FÍ þegar Ferðadagbókin kom út.


 

 

 

 


 

 

 

 

Ferðafélag Íslands hefur nú gefið út  bókina Í náttúrunnar stórbrotna ríki, ferðadagbók um Brúaröræfi og í Öskju sumarið 1954. Höfundur er Ingólfur Einarsson, fyrrverandi skrifstofumaður.  Ferðin er örugglega ein af þeim fyrstu sem farnar voru í Kárahnjúka.

Bókin er byggð á ferðadagbók frá í árdaga ferða á fjallabílum inn á hálendi Íslands og  hefur því heimildagildi um þann tíma. Ingólfur var mikill ferðamaður og ritaði ferðadagbækur sem ná yfir sextán ára skeið, en hér er lýst ferð sem honum er eftirminnilegust, “var hálfgerð landkönnun í og með,” eins og hann kemst að orði.

Leiðin lá inn í Herðubreiðarlindir og Hvannalindir, en til þess að komast þangað þurfti að fara yfir tvö stórfljót, Kverká og Kreppu. Yfir Kverká var farið á gúmmíbát , en plankar lagðir yfir Kreppu. Einnig var farið að Kárahnjúkum og  Töfrafossi í Kringilsárrana. Komið var við í Möðrudal þar sem hópurinn hitti  þjóðsagnapersónuna Jón Stefánsson og  lét hann fararstjórann fá leiðarvísi um Brúaröræfi sem hér er birtur. Í  bókinni eru margar ljósmyndir, einnig kort af því  svæði sem yfir er farið.

Gerður Steinþórsdóttir ritar formála að bókinni og sá um útgáfuna ásamt Svavari Sigmundssyni. Guðmundur Ó. Ingvarsson gerði kort af leiðum.

Bókin fæst á skrifstofu félagsins og kostar kr. 1500