Hópur vaskra félagsmanna í Ferðafélagi Skagfirðinga hélt upp að Hofsjökli helgina 17. – 19. ágúst í vinnuferð. Aðalmarkmið ferðarinnar var að mála Ingólfsskála. Undanfarin ár hefur verið borin tjara á skálann en það hefur ekki gefist vel. Nú var breytt til og veggir olíubornir. Skálinn var málaður að utan þrjár umferðir. Valinn var grænn litur í stíl við skála Ferðafélags Íslands.