Jákvæður jólapakki FÍ

Ferðafélag Íslands hefur boðið fjölmörgum fyrirtækjum upp á jákvæðan jólapakka, þe að gefa starfsmönnum sínum félagsaðild að Ferðafélagi Íslands og fá starfsmenn þá félagsskírteini, árbók og aðgang að öllu starfi félagsins og um leið ekki síst hvatningu til að hreyfa sig, fara út að ganga og halda til fjalla. 

Félagsmönnum FÍ er einnig bent á þennan möguleika að skemmtilegri jólagjöf en verðið er hið sama að árgjaldið eða kr. 5.800.   Þá minnir skrifstofa einnig á fjölda rita, korta og bóka sem fást á skrifstofu félagsins og nú er hægt að kaupa árbókina 2010 á kr. 7.900 eða á kr. 5.800 með því að ganga í félagið.