Jöklafararstjórar FÍ á sprungunámskeiði

 sumardaginn fyrsta stóð Ferðaféalgið fyrir jöklanámskeiði fyrir fararstjóra FÍ á Hvannadalshnjúk. Jökull Bergmann fjallaleiðsögumaður var leiðbeinandi á námskeiðinu. Meðal annars var farið yfir sprungubjörgun og margvíslegar aðferðir og tækni sem henni tengist.  Haraldur Örn Ólafsson fararstjóri FÍ á Hvannadalshnjúk og ferðanefndarmaður segir markmiðið hafa verið að efla og þjálfa fararstjórana og námskeiðið hafi verið mjög lærdómsríkt.  Sjá myndir af námskeiðinu