Árbókin hefur síðan komið út árlega í óslitinni röð í 80 ár og er einstæður bókaflokkur um land og náttúru. Hver bók fjallar venjulega um tiltekið afmarkað svæði á landinu. Árbækur Ferðafélagsins, 81 að tölu, eru því í raun altæk Íslandslýsing á meira en tólf þúsund blaðsíðum.
Gjafakort FÍ eru tilvalin jólagjöf fyrir göngumenn og útivistarfólk. Hægt er að gefa gjafakort með sumarleyfisferðum, helgarferðum eða dagsferðum.
Á skrifstofu FÍ fást einnig kort og fræðslurit um gönguleiðir, sögu og náttúru.