Jónsmessuganga á Heklu

Ferðafélagið stendur fyrir Jónsmessugöngu á Heklu föstudaginn 20. júní. Lagt er af stað frá Mörkinni 6 kl. 18 og ekið austur fyrir fjall að Skjólkvíum við Heklurætur.  Þaðan er lagt af stað í gönguna kl. 21.00. Áætlað er að vera á tindi Heklu um miðnætti og vera komin niður um kl. 02 aðfaranótt laugardags.  
Fararstjóri í ferðinni er Páll Guðmundsson.
Sjá myndir úr Jónsmessugöngu FÍ á Heklu sl. sumar.

Verð í ferðina er kr. 4000/6000 ef farið er með rútu, en kr. 3000 ef farið er í einkabíl.
Greiða þarf á skrifstofu FÍ tímanlega fyrir brottför.

Hafið með ykkur nesti og góðan útbúnað, þ.e. í útivistarfatnaði og góðum gönguskóm, með hlífðarfatnað í bakpokanum. Gott er að hafa göngustafi. Ekki er þörf á ísbroddum.

Gangan upp tekur um þrjá tíma og um tvo tíma niður.

Hekla er 1488 mhár eldhryggur og er eitt virkasta og þekktasta eldfjall á Íslandi og gjarnan kölluð Drottning íslenskra fjalla (ásamt Herðubreið).

Fjallið er staðsett sunnanlands í Rangárvallasýslu og sést víða að og er auðþekkjalegt – eins og bátur á hvolfi með breiðar axlir og háan toppgíg. Síðast gaus Hekla í febrúar 2000. Þá var hægt að spá fyrir um eldgosið 15 mínútum áður en það hófst.

Hekla er fremur ungt eldfjall og er núverandi meginhluti hennar talinn vera yngri en 2.500 til 7.000 ára gamall. Fjallið stendur á fremur þykkri jarðskorpu þar sem Suðurlandsbrotabeltið og Suðurlandsgosbeltið mætast. Þarna er því mikil virkni í jarðskorpunni, spenna er hlaðinn í brotbeltinu en undir gosbeltinu liggja kvikuhólf og -þrær.

Allstór sprungurein er undir fjallinum sem bendir til þess að gos hafi verið í gossprungum áður en fjallið hlóðst upp og kvikuhólf þess myndaðist. Þessi sprunga sést vel á yfirborðinu og hefur oft gosið úr henni, en þó líka úr öxl fjallsins, s.s. utan sprungunnar. Þessari Heklugjá tengjast fleiri gígar sem hafa gosið í áranna rás, sumir einu sinni, aðrir oftar.

Fjallið sker sig frá öðrum íslenskum eldfjöllum að því leyti að kvikuhólf hennar er mun dýpra en í öðrum fjöllum landsins, eða á um 11 km dýpi í jarðskorpunni.