Kvikmyndir úr ferðasafni F.Í.

Myndakvöld F.Í. hefjast nú að nýju að loknu sumri.  Myndakvöld verður haldið miðvikudaginn 24. september kl. 20.00.  Þá sýnir Jóhannes Ellertsson langferðabílstjóri og ferðafélagi kvikmyndir úr ferðum félagsins, allt frá árinu 1958.  Jóhannes sem var á meðal fyrstu manna á landinu til að eignast kvikmyndatökuvél og tók fjölmargar kvikmyndir á ferðum sínum með félaginu og koma ótal margir gamlir og góðir félagsmenn við sögu í þessari sýningu Jóhannesar sem sýnir á skemmtilegan hátt stemmingu í ferðum, búnað, leiðsögn og fleira.  Aðgangseyrir á myndakvöldið er kr. 600. Innifalið er kaffi og meðlæti.  Allir velkomnir.