Kynningar á ferðum næsta sumars

Næstu þrjá mánuði mun FÍ kynna nokkrar af þeim ferðum sem boðið verður upp á næsta sumar á sérstökum kynningarkvöldum þar sem fararstjórar segja frá ferðunum og sýna myndir.

Fyrsta ferðakynningin verður næstkomandi þriðjudagskvöld 9. febrúar í risi FÍ, Mörkinni 6 og hefst stundvíslega kl. 20. Áhugasamir eru hvattir til að koma og kynna sér ferðirnar, hitta fararstjórana og mögulega ferðafélaga.

Þetta fyrsta kvöld verður farið yfir þrjár ferðir næsta sumars. Smellið á nöfnin til að lesa meira um þessar ferðir.

Lónsöræfi

Friðland að Fjallabaki

Níu tindar Tindfjalla

Frá Lónsöræfum