Ferðafélag barnanna er nýkomið úr ferð um Laugaveginn. Ferðin tókst mjög vel, veðrið lék við börn og fullorðna í ferðinni, farið var í leiki, slegið upp kvöldvökum, sungið og sprellað og varðeldur lokakvöldið. Fararstjórar voru þau Eva og Daníel, sem meðal annars eru umsjónarmenn Útivistarskólans á Gufuskálum. Næsta ferð Ferðafélags barnanna er berja- og föndurferð í Þórsmörk 19.-21. ágúst. Skráning á skrifstofu FÍ.
Ferðafélag barnanna býður upp á fjölskylduferð í um Laugarveginn 19.-23. júlí. Tilvalin ferð fyrir alla fjölskylduna.
Ferð um vinsælustu gönguleið landsins. Gist verður í skálum og farangur fluttur á milli staða. Fararstjórarnir halda uppi stemningu með ýmsum leikjum, æfingum og sprelli. Tilvalin ferð fyrir alla fjölskylduna.