Laugavegurinn í máli og myndum - næsta myndakvöld

Næsta myndakvöld FÍ er miðvikudaginn 18. febrúar.  Þá verður fjallað um Laugaveginn, vinsælustu gönguleið landsins.  Farið verður yfir gönguleiðina, náttúru og sögu, örnefni, útúrdúra, skála, aðstöðu og þjónustu og ekki síst verður sungið slegið upp dæmigerðri stemmingu á kvöldvökum í Laugavegsferðum.  Myndakvöldið hefst kl. 20 í FÍ salnum Mörkinni 6.  Aðgangseyrir er kr. 600 og allir velkomnir.  Innifalið er kaffi og meðlæti.