Lokaáfangi Laugavegar - haustferð í Þórsmörk - Emstrur - Þórsmörk

17. - 18. september

Emstrur - Þórsmörk

 

Fararstjóri: Kristján M. Baldursson

Brottför kl. 8 frá Mörkinni 6. Ekið inn á Emstrur og gengin síðasti áfangi Laugavegarins er liggur um Almenninga til Þórsmerkur (6-7 klst ganga). Þeir sem kjósa geta farið með rútunni til Þórsmerkur og sleppt göngunni. Gist í Skagfjörðsskála í Langadal. 

Verð: 22.000 / 27.000 - Innifalið: Rúta, gisting, fararstjórn