Frábær þátttaka hefur verið í lýðheilsugöngum FÍ út um allt land sem af er þessum mánuði. Næstu göngur fara fram víðsvegar um landið n.k. miðvikudag, 20. september.
„Gengið hefur verið í öllum landshlutum alla miðvikudaga nú í september, göngunum verður haldið áfram nú á miðvikudaginn kemur. Þátttakan hefur farið fram úr okkar björtustu vonum og hlökkum við til að ganga með öllu þessu frábæra fólki um land allt,“ segir Ólöf Sívertsen verkefnastjóri hjá Ferðafélagi Íslands.
Næstu göngur fara fram 20. september viðsvegar um landið. Nánari upplýsingar eru að finna á heimasíðu verkefnisins, fi.is/lydheilsa.