Lýðheilsugöngur Ferðafélags Íslands eru fjölskylduvænar göngur sem taka u.þ.b. 60-90 mínútur og er tilgangur þeirra að hvetja fólk til útivistar og hreyfingar í góðum félagsskap og efla þar með heilsu sína og lífsgæði.
Allar upplýsingar um göngustaði vítt og breitt um landið má nálgast hér http://lydheilsa.fi.is/um-gongurnar/
Vonandi reima sem flestir á sig gönguskóna með okkur á miðvikudögum í september, fara út í náttúruna og njóta fallega landsins okkar.
LIFUM OG NJÓTUM!