Máttur víðernanna

Í tilefni vorhátíðar Kötlu jarðvangs bjóða Eldvötn - samtök um náttúruvernd í Skaftárhreppi til málþings á sumardaginn fyrsta, 19. apríl, kl. 13-16:30 í félagsheimilinu Kirkjuhvoli á Kirkjubæjarklaustri.

Yfirskriftin er: Máttur víðernanna, en ætlunin að fjalla um þau frá ýmsum hliðum; skoða m.a. hvaða ávinning samfélagið getur haft af nábýlinu við þau - og hvaða sess þau hafa m.t.t. skipulagsmála.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, mun kynna hugmynd um miðhálendisþjóðgarð.

Dagskrá málþingsins:
13:00 Setning. Ingibjörg Eiríksdóttir, formaður Eldvatna
13:05 Miðhálendisþjóðgarður. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra.
13:30 Landnýting og skipulagsvald. Trausti Fannar Valsson, lögfræðingur
13:55 Tilnefning Vatnajökulsþjóðgarðs á heimsminjaskrá Unesco. Snorri Baldursson, líffræðingur og rithöfundur

14:20 KAFFIHLÉ

14:50 Gildi óraskaðra víðerna fyrir atvinnustarfsemi.
- Guðmundur Fannar Markússon og Rannveig Ólafsdóttir hjá Icelandic Bike Farm, Mörtungu á Síðu
- Hadda Björk Gísladóttir og Haukur Snorrason, Iceland photo tours, Hrífunesi í Skaftártungu
- Heiða Guðný Ásgeirsdóttir, Vaga, gönguferðir Ljótarstöðum í Skaftártungu
15:20 Möguleikar jarðfræðitengrar ferðaþjónustu. Hörður Bjarni Harðarson, jarðfræðingur, Kötlu jarðvangi
15:45 Hugleiðing um víðerni. Stefanía Ragnarsdóttir, landvörður og hönnuður.
16:00 Samantekt fundarstjóra
16:10 Lokaorð formanns og málþingsslit.

Fundarstjóri: Fanney Ásgeirsdóttir

Sjá viðburðinn á Facebook: https://www.facebook.com/events/415065732283737/