Á morgun, miðvikudaginn 23.júní kl 15 verður farið á Esjuna með barnið á bakinu.
Fararstjóri verður Auður Kjartansdóttir. Áður en haldið verður af stað í gönguna verður örlítil umræða um notkun burðarpokans og svo verður gengið um hlíðar Esjunnar.
Mæting er á bílastæði við Esjurætur. Þátttaka er ókeypis og við hvetjum alla sem vilja njóta sín í náttúrunni og kynna sér notkun burðarpokans betur að mæta.
Hlökkum til að sjá ykkur!