Með fróðleik í fararnesti

20. apríl – Fuglaskoðunarferð við Grafarvog
Tómas Grétar Gunnarsson, forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Suðurlandi, leiðir ferð í Grafarvog þar sem farfuglar safnast fyrir á leirunni. Þátttakendur koma saman á bílastæðinu við Grafarvogskirkju kl. 10 árdegis og mælst er til að þeir taki með sér sjónauka. Ferðin er farin í samvinnu við Ferðafélag barnanna.

27. apríl – Kræklingaferð í Hvalfjörð
Gísli Már Gíslason, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild, og Halldór Pálmar Halldórsson, forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Suðurnesjum, leiða ferð á slóðir kræklingsins í Hvalfirði. Kræklingi verður safnað og fræðst um hann og verkun hans. Lagt verður af stað frá Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands, kl. 10.00. Hægt verður að sameinast þar í bíla. Gert er ráð fyrir að ferðin taki um það bil þrjár klukkustundir að akstrinum í Hvalfjörð meðtöldum. Mælt er með því að þátttakendur taki með sér stígvél og ílát fyrir krækling. Ferðin er farin í samvinnu við Ferðafélag barnanna.