Menningarsjóður VISA styrkir Ferðafélag Íslands

Menningarsjóður  VISA hefur styrkt Ferðafélag Íslands til tveggja verkefna.  Annars til eflingar á gögnuferðum og útiveru fyrir eldri borgara og hins vegar til endurbóta og bættrar aðstöðu í skálum félagsins.  Styrkurinn var afhendur sl. föstudag.  Björk Þórarinsdóttir stjórnarformaður Valitor afhenti styrkinn sem Höskuldur Jónsson fyrrverandi forseti FÍ veitti viðtöku fyrir hönd félagsins.

Menningarsjóður VISA  Íslands hefur styrkt Ferðafélag Íslands til tveggja verkefna.  Annars til eflingar á gögnuferðum og útiveru fyrir eldri borgara og hins vegar til endurbóta og bættrar aðstöðu í skálum félagsins.  Styrkurinn var afhendur sl. föstudag.  Björk Þórarinsdóttir stjórnarformaður Valitor afhenti styrkinn sem Höskuldur Jónsson fyrrverandi forseti FÍ veitti viðtöku fyrir hönd félagsins.

Ferðafélag Íslands hefur að undanförnu boðið upp á gönguferðir fyrir eldri og heldri borgara. Gengið er frá Árbæjarlaug og Nauthóli á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 14 með fararstjóra, Alfreð Hilmarssyni. Þátttakan er ókeypis og allir velkomnir.  Auk þess hefur FÍ gefið út bækling um gönguferðir eldri borgara og dreift víða sem og hent upp veggspjöld með kynningu á gönguferðum og útivistarmöguleikum fyrir eldri borgara.  Þessu starfi verður nú haldið áfram, eflt og kynnt frekar.

Menningarsjóður VISA Íslands hefur á undanförnum árum styrkt FÍ til skiltagerðar á vinsælustu gönguleiðum landsins, Laugaveginum og Fimmvörðuhálsi og auk þess til skiltagerðar við Hvannadalshnúk.   Nú á næstu dögum verður sett upp nýtt skilti við við Esjuna.  Skiltin eru nýung í skiltagerð á útivistarsvæðum á Íslandi. 

 VISA er samstarfsaðili FÍ að Esjudeginum 12. júní,  Esjudegi VISA og FÍ, sem haldin er ár hvert.

 Sjá fréttatilkynningu frá 2007 þegar skilti á Laugaveginum voru afhjúpðuð.

Sjá Fréttatilkynningu frá FÍ vegna uppsetningu skiltanna.

Föstudaginn 13. júlí vígir Ferðafélag Íslands ný og afar vegleg skilti sem sett hafa verið upp við skála félagsins á Laugaveginum með fulltingi Menningarsjóðs VISA Íslands. 

Athöfnin fer fram við skálann í Landmannalaugum og hefst kl. 14.00.

Um er að ræða nýjung í merkingu gönguleiða á Íslandi og nýjung í skiltagerð hér á landi. Skiltin eru hönnuð þannig að í grunninn eru þrívíddarmyndir af landslaginu, á grunninn eru síðan lagðar ljósmyndir sem síðan eru málaðar af listamanni og loks eru færðar inn upplýsingar um örnefni, skála og fleira gagnlegt á kortið.   


Á skiltunum eru nákvæmar leiðarlýsingar á dagleiðum á þremur tungumálum, auk helstu upplýsinga um öryggisþætti, búnað og fleiri atriði sem ferðamenn varðar um á þessari tilkomumiklu gönguleið. Skiltin, sem eru alls 10 talsins, sýna leiðina um Laugaveginn frá Landmannalaugum í Þórsmörk og hafa verið sett upp við skála félagsins við Hrafntinnusker, Landmannalaugar, Álftavatn, Emstrur og Þórsmörk.
 

Bætt ferðamenning – aukið öryggi

Ólafur Örn Haraldsson, forseti Ferðafélagsins, er mjög ánægður með þetta framtak. “Uppsetning þessara vönduðu skilta er þáttur í þeirri stefnu félagsins að auka  upplýsingaþjónustu við ferðamenn og bæta öryggi þeirra, en reynslan sýnir að þessi gullfallega leið getur verið varasöm ef ekki er rétt að farið.” Ólafur bendir á að tilkoma skiltanna sé líka innlegg í bætta ferðamenningu sem Ferðafélagið hafi unnið ötullega að á löngum ferli. “Við viljum gera okkar til að efla ferðamenningu og ferðagleði Íslendinga og annarra ferðalanga og vekja fólk til aukinnar vitundar um töfra landsins. Þar gegna vandaðar og aðgengilegar upplýsingar veigamiklu hlutverki. Ég vil sérstaklega þakka Menningarsjóði VISA Íslands, sem kostaði hönnun og gerð skiltanna, afar myndarlegan stuðning en án hans hefði verið ógerlegt að vanda svo vel til verka.” 

Vinsælasta gönguleið landsins

Laugavegurinn nýtur fádæma vinsælda sem gönguleið en hana fara á milli 6.000 og 8.000 manns á hverju sumri. Hefur Ferðafélagið byggt upp aðstöðu fyrir ferðamenn á Laugaveginum, skála, tjaldstæði og snyrtiaðstöðu. Laugavegurinn er rösklega 50 km langur og tekur hefðbundin gönguferð um leiðina 4 daga. Sérstaða leiðarinnar felst ekki síst í því hve fjölbreytt hún er, en m.a. er gengið um jökulsvæði, eyðimerkursanda og græna skóga.