Miðfellstindur 8. - 9. júní - Nokkur laus pláss

Ferðafélag Íslands er með á dagskrá ferð á Miðfellstind 8.-9. júní. 2 dagar - NOKKUR LAUS PLÁSS

Fararstjóri: Guðmundur Jónsson. Hámarksfjöldi: 15.

Brottför: Kl. 22 frá Skaftafelli.

Gengið á föstudagskvöldi inn í Kjós og tjaldað þar áður en haldið er upp á Miðfellstind, 1420 m, næsta dag. Tjöldin tekin saman á bakaleiðinni og gengið til baka í Skaftafell. Ganga á Miðfellstind er ögrandi verkefni fyrir brattgengustu fjallgöngumenn. Tindurinn rís fyrir botni Morsárdals, sunnan í Vatnajökli, nærri Þumli. Jöklabúnaður nauðsynlegur. Ganga verður frá skráningu og greiðslu á ferð þremur vikum fyrir brottför.

Verð: 23.000/26.000.