Morgungöngur FÍ og VÍS - Esjan á föstudag

Í fimmtu og síðustu morgungöngu Ferðafélags Íslands og VÍS að þessu sinni verður gengið áleiðis upp i Esjuna. Gangan hefst við Esjustofu og verður farið eftir hefðbundinni leið upp að Kögunarhóli í 250 metra hæð. Að lokinni göngu býður Ferðafélag Íslands upp á léttan morgunmat við Esjustofu.
Þáttakendur geta ekið saman í halarófu úr Mörkinni 6 kl. 06.00 stundvíslega eða mætt á upphafsstað göngu og lagt bílum sínum fyrir neðan Esjustofu.