Morgungöngur - Keilir

Morgungöngur FÍ héldu áfram í morgun þegar gengið var á Keili.  Páll Ásgeir Ásgeirsson fararstjóri í morgungöngunum var hinn sprækasti í morgunsárið og stýrði morgunleikfimi af mikilli lipurð. Páll Ásgeir segist mjög ánægður með þátttökuna en um 60 manns hafa nú tekið þátt í báðum morgungöngunum.  ,,Á morgun kl. 6 leggjum við af stað í morgungöngu á Vífilsfell og það eru allir velkomnir. Það er virkilega góð tilfinning að standa á fjallstindi og horfa yfir borgina eldsnemma  morguns."  Guðbjörg Jóhannesdóttir sóknarprestur í Háteigssókn var með morgunhugvekju á Keili.

Sjá myndir