Myndagetraun II

Myndagetraun FÍ í tilefni af 80 ára afmæli félagsins hefur mælst vel fyrir. Ný myndaþraut verður hér á heimasíðunni í hverri viku fram að afmælisdeginum 27. nóvember nk.

Svör við hverri þraut skulu send á netfangið fi@fi.is. Vegleg ferðaverðlaun eru veitt fyrir rétt svar.

Myndin hér að neðan er tekin í einni fjölmennustu ferð félagsins. Hvar er hún tekin og hvaða ár, og hvert var ferðinni heitið. Hvað voru margir með í ferðinni og nefnið amk einn fararstjóra í ferðinni.

 

Eyvindarkofi