Myndakvöld 20. febrúar – Náttúruperlur V-Skaftafellssýslu

Myndakvöld FÍ verður miðvikudagskvöldið 20. febrúar kl 20.00 í sal FÍ Mörkinni 6.

Gísli Már Gíslason, Þóra Ellen Þórhallsdóttir og Vigfús Gunnar Gíslason sýna myndir úr 4 daga göngu FÍ í júlí síðastlinum um náttúruperlur í Vestur-Skaftafellssýslu. Gengið var meðfram Hólmsá, frá Hrífunesi í Skaftártungu um Álftaversafrétt og Skaftártunguheiðar, með Hómsárlónum í Strútslaug sunnan Torfajökuls.

Aðgangseyrir 500 kr. Kaffi og kleinur í hléi.