Myndakvöld á miðvikudag 1. febrúar- Sýnishorn af sumri

Myndakvöld Ferðafélags Íslands verður haldið í sal FÍ í Mörkinni 6 miðvikudagskvöld 1. febrúar n.k. og hefst kl. 20.00. Myndakvöldið ber yfirskriftina: Sýnishorn af sumri.
Þar verða sýndar myndir úr ferðum á vegum félagsins síðastliðið sumar en jafnframt skyggnst fram til næsta sumars og litið í áætlun Ferðafélagsins sem er nýkomin út.
Umsjónarmenn myndakvöldsins eru: Páll Ásgeir Ásgeirsson og Rósa Sigrún Jónsdóttir fararstjórar. Fleiri fararstjórar úr röðum félagsins verða á staðnum og svara fyrirspurnum um ferðir næsta sumars.
Aðgangseyrir er kr. 500 og kaffi og kleinur til veitinga í hléi.